Völundarkviða Frá Völundi Níðaður hét konungur í Svíþjóð. Hann átti tvo sonu og eina dóttur. Hún hét Böðvildur. Bræður vóru þrír, synir Finnakonungs. Hét einn Slagfiður, annar Egill, þriðji Völundur. Þeir skriðu og veiddu dýr. Þeir kómu í Úlfdali og gerðu sér það hús. Þar er vatn er heitir Úlfsjár. Snemma um morgun fundu þeir á vatnsströndu konur þrjár, og spunnu lín. Þar vóru hjá þeim álftarhamir þeirra. Það vóru valkyrjur. Þar vóru tvær dætur Hlöðvés konungs, Hlaðguður svanhvít og Hervör alvitur, in þriðja var Ölrún Kjársdóttir af Vallandi. Þeir höfðu þær heim til skála með sér. Fékk Egill Ölrúnar en Slagfiður Svanhvítrar, en Völundur Alvitrar. Þau bjuggu sjö vetur. Þá flugu þær að vitja víga og kómu eigi aftur. Þá skreið Egill að leita Ölrúnar en Slagfiður leitaði Svanhvítrar en Völundur sat í Úlfdölum. Hann var hagastur maður svo að menn viti í fornum sögum. Níðuður konungur lét hann höndum taka svo sem hér er um kveðið: 1. Meyjar flugu sunnan myrkvið í gögnum, alvitur ungar örlög drýgja. Þær á sævarströnd settust að hvílast, drósir suðrænar, dýrt lín spunnu. 2. Ein nam þeirra Egil að verja, fögur mær fira, faðmi ljósum. Önnur var Svanhvít, svanfjaðrar dró, en in þriðja þeirra systir varði hvítan háls Völundar. 3. Sátu síðan sjö vetur að það en inn átta allan þráðu en inn níunda nauður um skildi. Meyjar fýstust á myrkvan við, alvitur ungar, örlög drýgja. 4. Kom þar af veiði veðureygur skyti, Slagfiður og Egill sali fundu auða, gengu út og inn og um sáust. 5. Austur skreið Egill að Ölrúnu en suður Slagfiður að Svanhvítu, en einn Völundur sat í Úlfdölum. 6. Hann slá gull rautt við gim fástan, lukti hann alla lind baugum vel. Svo beið hann sinnar ljóssar kvonar ef honum koma gerði. 7. Það spyr Níðuður, Njára dróttinn, að einn Völundur sat í Úlfdölum. Nóttum fóru seggir, negldar vóru brynjur, skildir bliku þeirra við inn skarða mána. 8. Stigu úr sölum að salar gafli, gengu inn þaðan endlangan sal; sáu þeir á bast bauga dregna, sjö hundruð allra, er sá seggur átti. 9. Og þeir af tóku og þeir á létu, fyr einn utan, er þeir af létu. 10. Kom þar af veiði veðureygur skyti, Völundur líðandi um langan veg. Gekk brúnnar beru hold steikja, ár brann hrísi allþurr fura, viður inn vindþurri, fyrir Völundi. 11. Sat á berfjalli, bauga taldi, álfa ljóði, eins saknaði; hugði hann að hefði Hlöðvés dóttir, alvitur unga, væri hún aftur komin. 12. Sat hann svo lengi að hann sofnaði; og hann vaknaði viljalaus; vissi sér á höndum höfgar nauðir en á fótum fjötur um spenntan. Völundur kvað: 13. Hverjir eru jöfrar þeir er á lögðu bestibyrsíma og mig bundu? 14. Kallaði nú Níðuður Njára dróttinn: Hvar gastu, Völundur, vísi álfa, vora aura í Úlfdölum? Gull var þar eigi á Grana leiðu, fjarri hugða eg vort land fjöllum Rínar. Völundur kvað: 15. Man eg að vér meiri mæti áttum er vér heil hjú heima vórum: Hlaðguður og Hervör borin var Hlöðvé kunn var Ölrún Kjárs dóttir. 16. [Úti stendur kunnig kvon Níðaðar], hún inn um gekk endlangan sal, stóð á gólfi, stillti röddu: Er-a sá nú hýr er úr holti fer. Níðuður konungur gaf dóttur sinni Böðvildi gullhring þann er hann tók af bastinu að Völundar, en hann sjálfur bar sverðið er Völundur átti. En drottning kvað: 17. Tenn honum teygjast er honum er téð sverð og hann Böðvildar baug um þekkir. Ámun eru augu ormi þeim inum frána. Sníðið ér hann sina magni og setjið hann síðan í Sævarstöð. Svo var gert, að skornar vóru sinar í knésbótum og settur í hólm einn er þar var fyrir landi, er hét Sævarstaður. Þar smíðaði hann konungi alls kyns gersimar. Engi maður þorði að fara til hans nema konungur einn. Völundur kvað: 18. Skín Níðaði sverð á linda, það er eg hvessta sem eg hagast kunna og eg herðag sem mér hægst þótti. Sá er mér fránn mækir æ fjarri borinn, Sékk-a eg þann Völundi til smiðju borinn Nú ber Böðvildur brúðar minnar bíðk-a eg þess bót bauga rauða. 19. Sat hann, né hann svaf, ávallt og hann sló hamri; vél gerði hann heldur hvatt Níðaði. Drifu ungir tveir á dýr sjá, synir Níðaðar, í Sævarstöð. 20. Kómu þeir til kistu, kröfðu lukla, opin var illúð er þeir í sáu. Fjöld var þar menja er þeim mögum sýndist að væri gull rautt og gersimar. Völundur kvað: 21. Komið einir tveir, komið annars dags; ykkur læt eg það gull um gefið verða. Segið-a meyjum né salþjóðum, manni öngum, að ið mig fyndið. 22. Snemma kallaði seggur [á] annan, bróðir á bróður: Göngum baug sjá! 23. Kómu til kistu, kröfðu lukla, opin var illúð er þeir í litu. 24. Sneið af höfuð húna þeirra og undir fen fjöturs fætur um lagði en þær skálar, er und skörum vóru, sveip hann utan silfri, seldi Níðaði. 25. En úr augum jarknasteina sendi hann kunnigri kván Níðaðar, en úr tönnum tveggja þeirra sló hann brjóstkringlur sendi Böðvildi. 26. Þá nam Böðvildur baugi að hrósa - - - - - - er brotið hafði: Þorig-a eg að segja nema þér einum. Völundur kvað: 27. Eg bæti svo brest á gulli að feður þínum fegri þykir og mæður þinni miklu betri og sjálfri þér að sama hófi. 28. Bar hann hana bjóri því að hann betur kunni svo að hún í sessi um sofnaði. Nú hefi eg hefnt harma minna allra nema einna íviðgjarna. 29. Vel eg, kvað Völundur, verða eg á fitjum þeim er mig Níðaðar námu rekkar. Hlæjandi Völundur hófst að lofti, grátandi Böðvildur gekk úr eyju, tregði för friðils og föður reiði. 30. Úti stendur kunnig kvon Níðaðar og hún inn um gekk endlangan sal. En hann á salgarð settist að hvílast. Vakir þú, Níðuður Njára dróttinn? Níðuður kvað: 31. Vaki eg ávallt viljalaus, sofna eg minnst síst mína sonu dauða; kell mig í höfuð, köld eru mér ráð þín, vilnumk eg þess nú að eg við Völund dæma. 32. Seg þú mér það, Völundur, vísi álfa, af heilum hvað varð húnum mínum. Völundur kvað: 33. Eiða skaltu mér áður alla vinna, að skips borði og að skjaldar rönd, að mars bægi og að mækis egg að þú kvelj-at kvon Völundar né brúði minni að bana verðir, þótt vér kvon eigim, þá er þér kunnið, eða jóð eigim innan hallar. 34. Gakk þú til smiðju þeirrar er þú gerðir, þar finnur þú belgi blóði stokkna; sneið eg af höfuð húna þinna og und fen fjöturs fætur um lagðag. 35. En þær skálar, er und skörum vóru, sveip eg utan silfri, senda eg Níðaði; en úr augum jarknasteina senda eg kunnigri kvon Níðaðar, en úr tönnum tveggja þeirra sló eg brjóstkringlur, senda eg Böðvildi. 36. Nú gengur Böðvildur barni aukin, einkadóttir ykkur beggja. Níðuður kvað: 37. Mæltir-a þú það mál er mig meir tregi né eg þig vilja, Völundur, verr um níta. Er-at svo maður hár að þig af hesti taki né svo öflugur að þig neðan skjóti þar er þú skollir við ský uppi. 38. Hlæjandi Völundur hófst að lofti en ókátur Níðuður sat þá eftir. Níðuður kvað: 39. Upp rístu, Þakkráður, þræll minn besti bið þú Böðvildi, meyna bráhvítu, ganga fagurvarin við föður ræða. 40. Er það satt, Böðvildur, er sögðu mér. Sátuð ið Völundur saman í hólmi? Böðvildur kvað: 41. Satt er það, Níðuður, er sagði þér. Sátum við Völundur saman í hólmi eina ögurstund, æva skyldi. Eg vætur honum vinna kunnag, eg vætur honum vinna máttag.