Matthías Viðar Sæmundsson Til varnar hjátrúnni Um hellistálsýn í íslenskum fræðum [Birtist fyrst í Fjölni, 2. tbl. 1997.] Hér geturðu komið með athugasemdir Að andmæla eða jafnvel eyða hleypidómum gegn einhverri trú (eða hjátrú) er ekki sama sem boða hana. Sigurður Nordal (1) Draumur Needhams Ímyndum okkur mann sem hrekkur upp við ræs formanns undir Jökli á miðri vorvertíð einhvern tíma um öndverða sautjándu öld. Hann fær tæplega samsamast sínu nýja samfélagi, reynslu þess og viðhorfum, enda er allt gjörólíkt því sem hann hefur átt að venjast. Hann skynjar væntanlega hafbrimið undan Tröllakirkju, drangana í flæðarmálinu og svört hraungrýtisbjörgin í baksýn með öðrum hætti en menn sem lifað höfðu við Bárðar sögu Snæfellsáss kynslóðum saman, enda minnir fátt á fágun og vernd nútímalífs, gróðurlausir hraunklettahryggir, svart, úfið hraun og allt "hræðilegt til að sjá", ritaði Eggert Ólafsson um miðja átjándu öld; og þótt jökullinn til norðurs veitti nokkurt skjól fyrir vindum þá gerði oft hörð næturfrost í Dritvík, fraus þá allt sem frosið gat og áttu amlóðar erfiðar nætur. Hrikalegir steindrangar Tröllakirkju vekja þó enn tilfinningu um skuggalega dularkrafta, og þarf ekki víðáttumikið ímyndunarafl til að ímynda sér helgar vélar á slíkum stað, einkum á drungalegum síðkvöldum að haustlagi, þegar þoku dregur fyrir jökul og dulið vex upp úr landinu, enda trúðu margir því enn á átjándu öld að "jarðbúar, huldufólk, dvergar eða þó einkum afturganga Bárðar Snæfellsáss" tálmuðu för manna upp á jökulfjallið, að sögn Eggerts;(2) og sjálft heiti Tröllakirkju ber vitni um kynngimagnað sambýli hugar og landslags, reynslu sem fólk hrærðist í og háfleyg hrellirök yfirvalda gátu ekki útrýmt. Menn hafa fundið til smæðar sinnar í þessari náttúru, þótt þeir reyndu að stækka sig með menningu í verstöðvum, en þar hittust skáld sem höfðu atvinnu af því að yrkja rímur út af sögum og sumir klóruðu sig fram úr fornri skrift eða voru kvæðamenn góðir; þarna voru jafnvel kenndir töfrar og sett saman galdrakver. Við þurfum væntanlega að vera samtíða til að geta skilið slíkt samfélag til fulls, enda hlýtur fullur skilningur að tengjast tilfinningalegri innlifun og vitsmunalegri yfirsýn í senn. Þetta fólk lýsti auk þess reynslu sinni með öðrum hætti en mörgum nútímamönnum er þóknanlegt - með örnefnum, orðtökum og málsháttum, þjóðsögnum, ævintýrum, venjum, vitnum og galdratáknum, sem virst geta annarleg eða fjarstæðukennd nú á dögum. Það þýðir samt ekki að heimur sautjándu aldar sé okkur með öllu glataður, himnarnir eru hinir sömu þótt hjásólir heiti öðrum nöfnum, og við verðum einnig bergnumin af þungbúinni einsemd Tröllakirkju þegar kvöldar um haust. Á slíkum stundum er hægt að nema blæ af horfinni reynsluveröld þar sem drunur sjávar, steinótt fjara, kafþykkur himinn, gnauð vinda um svartar steinborgir, snjóhvít jökulhetta og dimmblátt vatnslón mynda lífmagnaða heild með eigin huga. Þeir sem skoða framandi menningu nú á dögum hljóta að velta því fyrir sér um hvað og hvernig þetta fólk hugsar; hvort vitsmunalíf þess sé sett með öðru móti saman en vitsmunir okkar, eða svo vitnað sé í dæmi Wittgensteins um teikningu sem túlka mátti á tvennan hátt: hvort það líti á heiminn sem önd eða sem kanínu? Sá sem fæst við sögu sinnar eigin menningar stendur frammi fyrir svipuðum vanda: getur trúlítill nútímamaður, svo dæmi sé tekið, skilið og gert grein fyrir trúarlífi fólks sem bjó við gjörólík skilyrði fyrr á öldum? Hann þarf að túlka skoðanir og athafnir ókunnugs fólks sem í þokkabót er steindautt og hefur einungis skilið eftir sig leifar af lífi: leifar sem keppst er við að túlka og færa í nútímalegt form til skilningsauka. Þetta tiltæki getur tekist misjafnlega eins og enski mannfræðiprófessorinn Rodney Needham komst að raun um eftir áratuga rannsóknir, en í bók hans um trú, tungumál og reynslu (1972) er greint frá draumi sem endursegja má á eftirfarandi hátt: Mig dreymdi nótt eina að ég væri að ræða við Penanfólkið í frumskógum Borneó, en eins og oft gerist um ímyndaða endurfundi af slíku tagi rak mig í vörðurnar og hrökk upp miður mín yfir að geta ekki lengur sett saman rétta og skiljanlega setningu á penönsku. Setningin sem vakti mig af óværum svefni var "Ég trúi á Guð", en ég gat með engu móti orðað hana á máli Penanfólksins. Þessi draumur kveikti vangaveltur sem á næstu árum urðu að heilli bók. Ég vissi fyrir víst að Penanmenn töluðu um andlega veru, Peselong hét hún, er átti að hafa svipaða yfirburðastöðu í alheiminum og Guð kristinna manna, enda hafði ég sagt sjálfum mér að þetta steinaldarfólk tryði á sérstakan, almáttugan guð líkt og við, þótt ekki væri um formlegan átrúnað eða trúariðkun að ræða. Mér varð nú ljóst að fyrir þessu var ekki mállegur flugufótur, auk þess sem ég gat ekkert sagt um viðhorf fólksins, hvort það var trúað eða ekki, með orðum sem venjulega er beitt um slíkt ástand. Ég hlaut að viðurkenna með semingi að ég vissi ekkert um raunverulega trúarafstöðu Penanmanna. Spurningin var þá hvort skýrslur annarra þjóðfræðinga væru traustari, hvort þær sönnuðu í raun að fólk tryði á eitthvað, því hugarástand og hugmyndir eru augljóslega sitthvað. Sá sem fullyrti að fólk tryði einhverju þegar hann vissi í raun ekkert um hvað átti sér stað innra með því fór um jafnvilltur og hinn sem ekkert vildi segja um sálarástand og trúarlíf. Þessar draumleiðingar snerust með öðrum orðum um forsendur, markmið og mannlífstengsl félagslegrar mannfræði.(3) Árni Björnsson þjóðháttafræðingur hefur tæplega haft spurnir af draumi Needhams né orðið fyrir svipaðri reynslu ef marka má grein hans "Hvað merkir þjóðtrú?" í Skírni (vor, 1996). Þar er lítinn vafa að finna og vasklega gengið fram með hellistálsýn og fordómavillu að vopni. Hégiljur og hégiljungar Fyrst þetta: Getum við útskýrt eða sýnt fram á dýpri rök venja, víta og varúða, eiga kreddur sér rökfræðilegan grundvöll, hvaða ástæður eru til einstakra trúaratriða? Þessi vandamál tengjast víðtækari vanda sem orða má svona: Hvaða ástæður eru til þess sem kallað hefur verið hjátrú, á hún sér skynsamlegar forsendur eða kom fólk sér saman um hana rakalaust? Felur hún í sér "óbrotna hugsunarlist", "heimspeki fólksins" og "ekkert smáræði af hugsun"? Eða með orðum séra Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili (1908): "og því meira sem finst og þekkist af þessum sögnum, venjum og trúargreinum (kreddum), því meira samhengi fer að finnast í því..."(4) Íslenskir fræðimenn hafa brugðist við þessum vanda með margvíslegum hætti, því stundum er fjölyrt um líkamlega eða andlega sjúkdóma, vanþroskaða vitsmuni, almenna sefjun, frumstæða guðfræði, samfélagsaðstæður, landshætti og lífsskilyrði eða vísvitaðar blekkingar; fæstir hafa skyggnst í "samhengi" séra Jónasar. Slík viðbrögð eiga það sameiginlegt að vera reist á skoðunum um rétta þekkingu, eins og sjá má af neikvæðri hugtakanotkun. Hjátrúarhugtakið hefur þannig tengst óskynsemi, því sem er í senn órökvíst, annarlegt og ósatt, andstætt réttri trú eða skoðun, jafnvel sjúklegt, enda er orðið yfirleitt notað til útilokunar en ekki greiningar; hjátrúnni hefur verið lýst sem dularfullu afli er getur þurrkað út skynsemi og reynsluvit manna við ákveðnar aðstæður. Í orðabók Árna Böðvarsson (1963) er hjátrúarorðið skýrt sem "hindurvitni, kerlingabækur, trú á óraunverulega hluti", en einnig er getið um "bábilju" sem tengist bulli, "hégilju" sem haft er um smáræði, óveru og "(hégómlega) einfalda stúlkukind", og loks "kreddur" sem frá fornu fari vísa á trúarjátningu, trúarsetningu, "e-ð sem menn trúa í blindni, bíta sig í, geta ekki slitið sig frá", en merkja nú á dögum "heimskulega skoðun, bókstafstrú". Þessum hugtökum hefur eins og kunnugt er verið hrært saman við "þjóðtrú" sem hjá Árna er "trú alþýðu á tilveru og hætti ýmissa vætta og (dularfullra) fyrirbæra (utan trúarbragðanna)".(5) Slíkar skýringar eru í fullu samræmi við venjulegan skilning, en hafa þann galla að fyrirvara skortir, því öll orðin - bábiljur, hindurvitni, hégiljur, kreddur og kerlingabækur - löðra af fordómum.(6) Hið sama má segja um einstakar skýringartilraunir, Jóni Árnasyni varð til dæmis tíðrætt um að sögurnar væru ekki sannar og hann áliti þær ekki sannar,(7) en stundum er fimbulfambað um þvaður, ýkjur, óskhyggju, furðutrú og furðusagnir. Ýmis orð hafa því fallið um þetta fyrirbæri, en sé á heildina litið má greina tvær stefnur eða hneigðir, listhyggju og raunhyggju, en sú fyrri braust fram í ýmsum myndum um miðja nítjándu öld; Jón Árnason ritaði til dæmis um "ímyndunarafl þjóðarinnar sem ávallt skapar og yrkir", og í ritfregn Jóns Sigurðssonar forseta um þjóðsagnaútgáfu Maurers er ráðist gegn frumstæðri skynsemishyggju: "Látum vera, að mörg trú sé hjátrú og hindurvitni; vér getum ekki að því gjört, að oss finnst þessi trú vera samfara einhverju andlegu fjöri og skáldlegri tilfinningu, sem ekki finnst hjá þeim, er þykjast svo upplýstir að trúa engu".(8) Hjátrúin svokallaða er samkvæmt þessu listræn tjáning, afsprengi þjóðlegrar skáldlundar og ímyndunarafls; í því felst réttlæting hennar. Þessi fagurfræði hefur oft og tíðum blandast reynsluskýringum, til dæmis hjá séra Jónasi frá Hrafnagili (1908) er rakti þjóðtrú og þjóðsögur til "hugmyndaflugs og þankabrota mannsanda í reifum, sem horfir út yfir tilveruna, tekur það, sem fyrir augun og eyrun ber, og yrkir utanum það umgerðir, eftir því sem hver er til fær, jafnar það og gerir það ljóst, skiljanlegt og sögulegt á hvern þann hátt, er bezt gengur". Slík trú var afsprengi þjóðlegs ímyndunarafls, að dómi hans, jafnframt því sem hún fól í sér þekkingu á ákveðnu stigi, tilraunir til að skýra "orsakir og samhengi viðburðanna": "Þjóðtrúar- og þjóðsagna-fróðleikurinn hefir við meiri og fleiri rök að styðjast en margur ætlar, og gefur í mörgu vísindalega undirstöðu undir margt það, er ekki verður skýrt eða skilið á annan hátt". Þessi alþýðlega "hugsunarlist" náði samkvæmt Jónasi til daglegrar reynslu, fyrirbrigða og hugsunar, auk þess sem hún tók á hinu afbrugðna og óvenjulega; skáldlundin og skýringaþörfin fléttuðust saman, "að reyna að gera sér grein fyrir því, grafast eftir því, hvað það er, af hverju það sprettur, og að hverju það leiðir". Mörk heimspeki, hugarflugs og skáldlegs andríkis eru óljós hjá séra Jónasi, en þjóðtrú og þjóðsagnir mynda að dómi hans "alt aðra mannfræði, náttúrufræði og sögu, samhliða þeirri sem vísindin hafa fundið"; gengið er út frá þekkingarinntaki þjóðsagna og alþýðlegs fróðleiks, jafnframt því sem sett er fram fjölhyggja um veruleika, því þessi fyrirbæri fela í sér "heilan heim" með rætur í hugsun og reynslu, að mati séra Jónasar.(9) Hér má glögglega greina samblöndun rómantískra og raunsæislegra viðhorfa; hjátrúin er annars vegar list og tákn en hins vegar reynsla og tilvísun. Reynsluhyggja séra Jónasar er sálfræðilegs eðlis, en hún hefur yfirleitt tekið á sig öllu efnislegri og hversdagslegri mynd á þessari öld, svo sem sjá má af nýlegu hjátrúarriti Símons Jóns Jóhannssonar (1993), þar sem hjátrúin verður að dulbúnu, hversdagslegu raunsæi, áhöldum hagnýtrar skynsemi, uppeldistækjum og umhverfisvernd; heimarnir tveir renna saman í einn, ef svo má að orði komast.(10) Hugtök þjóðtrúar og hjátrúar hafa verið notuð hér í almennri merkingu um trúarviðhorf almennings fyrr á tímum, en hafa skal hugfast að Árni Björnsson hafnar hinu fyrra á þeim forsendum að aldrei hafi "nema tiltölulega lítill hluti Íslendinga (ca. 10%) verið sanntrúaður á drauga, huldufólk eða aðrar dularverur nema ef vera skyldi að einhverju leyti á 17. öld". Þessi fullyrðing styðst einungis við "hugarslangur" Árna sjálfs, því við getum ekkert staðhæft um hverju fólk hafi trúað í raun fyrir löngu. Könnun Erlends Haraldssonar á trúarlífi fólks árið 1974 sýnir auk þess að mikill meirihluti Íslendinga hafnar skynsemistrú og efnishyggju, því samkvæmt henni voru um 70% fólks ýmist trúuð á eða óviss í sinni sök um huldufólk, reimleika, fyrirboða og draumvitranir; margir vildu hvorki játa né neita tilveru yfirskilvitlegra fyrirbæra. Þessa könnun túlkar Árni kenningu sinni í hag þótt undarlegt sé, því efinn lýsir útbreiddri vantrú á vísindalega heimsmynd, jafnvel þótt um sé að ræða "óljósa skoðun og hugarslangur", eins og Árni kemst að orði. Reynsla annarra fræðimanna rennir stoðum undir þetta eins og sjá má af tveimur dæmum; Sigurður Nordal: "Það er skoðun mín af kynnum við allmargt fólk, sem eg sel þó ekki dýrara en eg keypti hana, að grunurinn um tilveru huldufólks sé enn þá furðulega almennur hér á landi, en oft og einatt fremur fólginn í varúð að fullyrða nokkuð af eða á en í svo eindreginni sannfæringu, að hann geti heitið trú". Þá færði Nordal rök fyrir því að trú á bannhelgi væri enn "lifandi og sterk" meðal fólks.(11) Ummæli Símons Jóns Jóhannssonar benda í sömu átt: "Þó að fæstir viðurkenni að þeir séu hjátrúarfullir er ótrúlega margt sem menn telja vissara að gera eða gera ekki í daglegu lífi, - svona til vonar og vara. Samskipti bókarhöfundar og viðræður við fólk meðan á samningu bókarinnar stóð hafa ýtt undir þá skoðun hans að Íslendingar séu ennþá talsvert hjátrúarfullir og að þessi hluti þjóðtrúarinnar sé síður en svo að falla í gleymsku. En hjátrúin hefur breyst með breyttu samfélagi ..."(12) Hér verður ekki lagður dómur á trú og vantrú, sérvisku og skynsemi, en svo virðist sem skuggi átjándu aldar sé enn til staðar, "trúleysa ofvitringanna", svo vitnað sé aftur til orða Jóns forseta; menn súpa enn visku upplýsingarmanna sem ekki gátu stöðvað sig á sprettinum og vildu úrskurða um allt milli himins og jarðar, það sem "gæti átti sér stað og jafnvel mætti eiga sér stað", eins og Nordal orðaði það.(13) Hlutverk íslenskra fræða er ekki að kveða upp dóma um sannindi trúarskoðana, heldur hljóta þau að fást við bannhelgi, vitni, sagnir og venjur sem setningar í þekkingarkerfi, sem táknmál reynslu og hugarfars. Hér er ekki átt við bollaleggingar um almenn tengsl skáldgáfu, sálarlífs og tíðaranda, þótt þær geti verið góðra gjalda verðar, heldur táknfræðilega og hugarfarssögulega þekkingarsköpun sem ekki hefur þróast hér á landi sem skyldi. Þá er enn alltof algengt, til dæmis í sagnfræði, að hjátrúarhugtakið sé notað á ógagnrýninn hátt um safn "trúarleifa", hégómlegt tjastur, hugsunarvillur og rökskekkjur; beitt er hugsunarlausri útilokun með hljómlausum aðhlátri, fordæmingu eða hégiljum um hlutlægni og veruleika. Það er því kannski of seint að endurvekja skilning Árna Óla (1975) sem benti réttilega á að hjátrúin væri "systir trúarinnar", enda þýðir forliðurinn "hjá" að hún sé "nærstæð" eða "til hliðar við" trúna; hjá merkir: fast við, í námunda við, nálægt, við hliðina á einhverju. Árni Óla taldi að hjátrúin væri hliðstæð skipulegri trú í svipuðum skilningi og gróðurangi sem sprettur upp af sömu rót og aðaljurtin kallast hjájurt; munurinn er sá fyrst og fremst "að trúin treystir á guðlega forsjón, en hjátrúin á andlega hjálpendur"; þannig er hún "til hliðar við trúna", ritaði Árni Óla.(14) Hjalti Hugason (1988) hefur haldið fram svipuðum skoðunum: "Má segja að alþýðutrú byggist að miklu leyti á trú á krafta og máttarvöld sem búa innan þessa heims og hafa má áhrif á með ýmiss konar aðferðum en kirkjan boði trú á Guð er búi utan eða handan þessa heims og ekki verður stjórnað með neinu móti heldur aðeins ávarpaður í auðmjúkri bæn".(15) Trú og hjátrú þurfa því ekki að stangast á, þær vega hvor aðra upp í dýrlegum samhljómi alheimsins, eins og sagt var forðum, kannski sem hvörf í hverfri heimsmynd. Hellistálsýn þjóðháttafræðings Forsenda sögulegs skilnings er að litið sé á "trúarleifar" sem vitni um raunverulega reynslu, en ekki sem einber ósannindi, villu, fáfræði eða dægurbundið orðagaman; rannsóknir liðins tíma hljóta að byggjast á fjölhyggju þegar að hugtökum eins og skynsemi, sannleika og raunveruleika kemur. Þeim mun skrýtnara er að sjá gamlar vofur leika ljósum logum í ritgerðum fræðimanna sem standa í fylkingarbrjósti íslenskra þjóðfræða, en svo virðist sem þekkingarsköpun mannvísinda á öldinni hafi fram hjá þeim farið líkt og laumulegt vorkunnarbros sögufróðrar kellingar. Viðhorf þeirra auðkennast af hellistálsýn sem getur komið fram í meðvituðum eða ómeðvituðum fordómum gagnvart framandi hugsun;(16) gengið er til dæmis út frá eðlismismun trúar og skynsemi, í stað þess að litið sé á skynsemina sem hugtak og aðferð verður hún að algildum mælikvarða þekkingar og sanninda. Slík tálsýn styðst oft við stíllegar og efnislegar brellur, hlutdrægni í notkun heimilda og óleyfilegar samlíkingar, auk þess sem stundum er eitrað við upptökin, þ. e. farið er lítilsvirðingarorðum um tiltekið viðfangsefni áður en reynt er að rökræða það. Þetta má einnig kalla fordómavillu. Síðasta dæmi þessa er ritgerð Árna Björnssonar, þar sem gengið er talsvert lengra í útilokun hjátrúar en sést hefur um langt skeið. Verður því staldrað við hana um stund. Því hefur verið haldið fram að trúarhugsun alþýðu hafi einkennst af "umtalsverðri fjölbreytni" fyrr á tímum; hún var "samsett kerfi ólíkra og jafnvel andstæðra trúarviðhorfa", ritar Hjalti Hugason, "þar sem hugmyndir frá forkristnum tíma, kaþólsk miðaldaviðhorf og lútersk trúartúlkun hafa ofist saman í fjölþætt munstur".(17) Þessi fjölþætta trúarhugsun hefur myndað skipulega heild á ákveðnu skeiði, en þegar tímar liðu hafa einstakir þættir hennar rofnað úr sínu upprunalega samhengi, tekið á sig nýja mynd og verið túlkaðir með öðrum hætti en verið hafði, auk þess sem þeir hafa blandast breytilegum aðstæðum, daglegri skynsemi, hagnýtum og vísindalegum viðhorfum með margvíslegum hætti. Hér er því erfitt að koma við einföldum orsakarskýringum, tengsl trúar, reynslu og skynsemi, sálarlífs og sögu, eru flóknari en stjörnueðlisfræði eins og draumur Needhams vitnaði um. Margir munu þó geta fallist á orð Sigurðar Nordals um huldufólkssögur: "Eigi að síður verður ekki efazt um, að þessar sögur eigi frá upphafi rætur sínar að rekja til þeirrar trúar, að einhverjar ósýnilegar verur séu í nábýli við mennska menn og ýmisleg skipti við þær geti átt sér stað";(18) ekki þó Árni Björnsson sem í ritgerð sinni heggur á tengsl trúar, venju og sagnar með einu hnífsbragði. Sögurnar vitna ekki um almenna lifandi þjóðtrú, að mati hans, heldur eru þær "í eðli sínu öðru fremur afþreying, munnlegt skemmtiefni, barnagaman, uppeldisfræði, viðvaranir, kímni, dæmisögur, lífsspeki, skáldskapur og fagurfræði" (85). Hann hefur með öðrum orðum komist að "öðru fremur-eðli" þjóðsagna, og væri fróðlegt að fá vitneskju um það sem þær eru "einnig" og "aukreitis", en af því fer ekki sögum. Hér er ekki verið að snúa út úr orðum Árna, því röksemdaaðferð hans er fólgin í linnulausum úrdrætti í stíl; "nokkuð mun til í því" ... "því má vera" ... "að hafi nokkuð til síns máls", er sagt með semingi þegar allt um þrýtur sem er "nokkuð" oft. Þá er mikið um lítilsvirðandi orðanotkun þegar kemur að skoðunum sem skynsömum nútímamanni þykja ekki við hæfi; dultrúin á að hafa verið undantekning en ekki regla fyrr á öldum, einkadund sérviturra einfara og einfalds alþýðufólks sem náttúrað var fyrir hugarflug. Heimildir Árna styðja tæplega kenningu hans. Oddur biskup Einarsson hélt því til dæmis fram að huldufólkstrú væri "hald almúgans" í Íslandslýsingu sinni um 1600, en það er leyst með því biskupi hafi vaxið svo í augum hjátrú landsmanna að hann taldi vitlaust; einn varð að mörgum og fáir að öllum. Biskup var auk þess sjálfum sér ósamkvæmur, að mati Árna, því ekki er fyrr minnst á "almúga" en sagt er að allir sæmilega viti bornir menn hafi álitið dularverur "hrekkjabrögð, tál og sjónhverfingar Satans". Hér er horft fram hjá túlkunarátökum sautjándu aldar, þar sem andaverur og dularvættir voru ýmist taldar til heims eða heljar; gengið var út frá tilveru þessara fyrirbæra en þau túlkuð á mismunandi hátt. Þá er horft fram hjá því að í riti Odds má finna margar dulhyggjuhugmyndir þrátt fyrir vísindalegt viðhorf í mörgum greinum, en ritið á það sammerkt með fjölda heimilda frá sautjándu og átjándu öld; munnmæli, galdra- og lækningakver, annálar, ævisögur og kvæði sýna oft og tíðum flækju hagnýtrar skynsemi, guðstrúar og forneskjulegrar töfrahyggju, bæði hjá "einfaldri alþýðu", menntuðum klerkalýð og veraldlegum embættismönnum. Árni bendir réttilega á að "svo langt sem rakið verður virðast menn á hverjum tíma hafa trúað á hjátrú fyrri manna en álíta hana sem næst útdauða á sínum eigin samtíma" (89). Bendir það ekki til þess að barátta kirkju og upplýsingar gegn dultrú almennings og veraldlegum skáldskap um þriggja alda skeið, frá Guðbrandi biskupi til Magnúsar Stephensens og upplýsingarmanna nítjándu aldar, hafi lítinn árangur borið; eða lugu þeir eins og séra Jónas frá Hrafnagili sem að sögn Árna "lét" svo sem hjátrú væri að deyja út um hans daga snemma á tuttugustu öld. Talað er um "ómeðvitaðar ýkjur eða óskhyggju nýrómantískra fræðimanna" sem um og eftir seinustu aldamót "heimfærðu skáldlegt hugarflug upp á þjóðina alla", sér til skemmtunar og af því dultrúað fólk þótti "svo náttúrulegt og óspillt og um fram allt skemmtilegt". Hér er væntanlega átt við fræðimenn eins og Ólaf Davíðsson auk séra Jónasar sem ekki hefur verið talinn til nýrómantískra skýjaglópa hingað til, enda sagði hann eitt sinn um þjóðtrú: "...það bindur eitt annað í þessum undarlegu og barnalegu kreddum og sögnum, og þó að oss finnist margt í því vera undarlegt og hjákátlegt, þá liggur einatt svo mikil alvara á bak við, jafnvel svo mikill sannleikur, að það sem oss virðist hlægilegt, verður alvarlegt og þess fyllilega vert, að því sé gaumur gefinn."(19) Sé þetta nýrómantík er ég draugur í Dritvík. Séra Jónas á allt um það að hafa hrundið á flot villuhugmynd sem hefur verið innrætt fólki um hundrað ára skeið, en samkvæmt henni átti þorri almennings "að hafa trúað og tryði jafnvel enn upp til hópa á tilvist drauga og huldufólks". Þessir fræðimenn "vildu blátt áfram að fólk væri eða hefði að minnsta kosti verið hjátrúarfullt" (skál. mín), að sögn Árna. Ástæður þessa "samsæris" eru óljósar, eins og hér mátti sjá, því ýmist er talað um ómeðvitaðar ýkjur, óskhyggju, vísvitaðar lygar og afþreyingarþörf viðkomandi fræðimanna; körlunum leiddist og þeir lugu. Slíkur áburður er auðvitað með eindæmum og ekki er eftirfarandi sögukenning síðri: "Sakir þessarar innrætingar meðal síðustu kynslóða hafa sennilega aldrei fleiri Íslendingar verið veikir fyrir dulhyggju en einmitt nú um stundir, nema ef vera skyldi á sautjándu öld". Um þetta verður varla nema eitt sagt: höfundur kann ekki hóf sitt fremur en Klaufi frændi forðum, auk þess sem fullyrðingar hans um afstöðu fyrri fræðimanna eru beinlínis rangar, svo sem sjá má af eftirfarandi orðum séra Jónasar frá Hrafnagili: "Þjóðtrúin og þjóðsagnirnar hafa legið í blóðinu, og hugsanir og skoðanir, sem orðnar eru ættgengar mann fram af manni, upprætast ekki á fáeinum áratugum; en þær breyta að nokkuru blæ sínum; en innra með mönnum lifir enn hin forna þjóðtrú og þjóðsagnir, og endurtekst og endurvaknar enn í dag með degi hverjum".(20) Árni skýrir uppruna einstakra greina út frá hagnýtri skynsemi, skáldfíflahneigð og skemmtunarþörf; þjóðsögur gegna svo dæmi sé tekið "sambærilegu afþreyingarhlutverki og spennubækur eða hryllings- og ævintýrakvikmyndir nútímans", að sögn Árna, þær lýsa "fyrst og síðast" löngun fólks í spennandi skemmtun, þótt stundum eigi þær að skýra torskilin en náttúruleg fyrirbæri; íslenskt landslag kallar oft á sögur þar sem ekki verða skil skáldskapar og vísinda, ritar Árni, auk þess sem rekja má kveikjur einstakra sagna og venja til "spurulla barna" og "hugmyndaríkra viðmælenda"; varúðir, forboð, sögur um álagabletti, kletta og nykurtjarnir voru áhrifamikil uppeldistæki og stuðluðu að eðlilegri náttúruvernd.(21) Hér er tilgáta um ástæðu sett fram í formi fullyrðingar sem allt á að skýra; margræð, gömul og óljós bannhelgi verður að barnauppeldi og umhverfisvernd án rannsóknar, því víti, varúðir og bannblettir hafa ekki verið könnuð á skipulegan hátt svo mér sé kunnugt um. Þetta efni hefur verið vanrækt að því skapi sem það er merkilegt, ritaði Sigurður Nordal 1972. "Það er trúa mín", skrifaði hann ennfremur, "að bannhelgin sé dýpsta og lífseigasta rót hinnar ævagömlu trúar á huldar náttúruvættir".(22) Hér er ekki ætlunin að draga fram sannindi um eðli og einkunn þess sem menn trúðu á, en bannhelgi á sér trúlega margskonar kveikjur og hlutverk - trú , táknmál og hagnýt sjónarmið hafa ofist saman í tímans rás. Hið sama gildir væntanlega um sögur um huldufólk og afturgöngur, en þær seinni kenndu mönnum að ganga vel um kirkjugarða, samkvæmt Árna. Þær höfðu með öðrum orðum einungis hagnýtan tilgang, þótt ekki megi "gleyma þeim mörgu hughreinu einstaklingum sem í einlægni telja sig verða fyrir dulrænni reynslu" auk þeirra "sem þóttust búa yfir dulrænum hæfileikum" fyrr á tímum, en með því "vildu þeir ávinna sér ákveðna virðingu" (skál. mín), að sögn Árna. Allt er það svo mikið á mér, sagði stúlkan; orðavalið dæmir sig sjálft. Stöldrum hér við áður en lengra er haldið. Við verðum í fyrsta lagi að hafa hugfast að ekki eru allar ástæður til skoðana rök; sé einstaklingur spurður af hverju hann hafi tiltekna skoðun, þá getur hann svarað með ólíku móti. Hér verður að gera greinarmun á orsökum, hvötum og tylliástæðum sem að vísu geta blandast saman.(23) Maður getur til dæmis verið þeirrar skoðunar að hann sé göldróttur af ýmsum ástæðum. Hann kann að hafa drukkið frá sér "allt vit" ellegar hann þjáist af þráhyggju eða ofskynjunum; þá er áfengisvíma eða skynvilla orsök þessarar skoðunar án þess hún geti talist rök fyrir henni. Maður þessi kann einnig að vera undir áhrifum hvata sem ekki þurfa að vera meðvitaðar, en geta ýmist verið sannar eða annarlegar. Hann getur til dæmis stjórnast af löngu gleymdum atburði eða ómeðvitaðri sálarlífsflækju (þrá, kvíða) sem tekið hefur á sig form rökstuddrar sannfæringar. Galdra-Loftur Jóhanns Sigurjónssonar er dæmi um slíkan einstakling, sálarlíf þar sem tvær tegundir ástæðna, hvöt og orsök, falla saman. Maður þessi getur einnig notað falsrök sem yfirvarp eða skálkaskjól, hann kann að hafa hagsmuni af því að skapa sér galdraorð, það fullnægir athyglisþörf eða er liður í valdabaráttu, svo dæmi sé tekið. Þá geta margar ástæður legið til eins atburðar eða verknaðar, sambland ytri kringumstæðna og innri sálarlífsskilyrða, og oftar en ekki er mat þeirra háð afstöðu þess sem skoðar. Loks er hugsanlegt að maður hafi verið alinn upp við galdratrú, sé haldinn heilasjúkdómi, stjórnist af hagsmunum og sjálfsblekkingu, en sé jafnframt gæddur afbrigðilegum sálarlífs- eða dáleiðslumætti sem venjulega er flokkaður undir "galdur". Afstaða hans getur mótast af rökum, hvötum og átyllum í senn, enda er engin millivegsleysa á milli eins og annars, þegar allt kemur til alls. Röksemdafærslur daglegs lífs eru háðar reynslu og kringumstæðum, enda er hæpið að greina á milli raka og annarra ástæðna fyrir skoðunum á grundvelli skynsemi; hvatir þurfa ekki að vera annarlegar og hægt er að komast að fráleitum niðurstöðum með því að beita fullkomlega skynsamlegum ályktunarreglum. Segjum að maður hafi veitt því athygli að regntöfrar að vori og vorleysingar hafa fylgst að svo lengi sem elstu menn muna. Er eitthvað óskynsamlegt við þá ályktun að úr því þessi árstími hefur alltaf haft þennan eiginleika þá vori ekki án töfraathafna. Rökfræðingum hefur a. m. k. ekki tekist að hrekja slíka ályktunaraðferð á óyggjandi hátt. Margir fræðimenn hafa á hinn bóginn horft fram hjá því, talað er þegar verst lætur um órökstuddar skoðanir, heimskuleg heilafóstur, vitleysiskreddur sem fólk á ýmist að hafa spunnið upp sér til skemmtunar eða sameinast um rakalaust. Nánari athugun leiðir samt í ljós að jafnvel "barnaleg" víti eru hvorki átyllur, lygar né firrur, heldur byggjast þau oft og tíðum á reynslu og/eða röklegum ályktunum sem fléttast á merkilegan hátt saman við hverfa eða analógíska heimsmynd. Þau búa með öðrum orðum yfir raunverulegum þekkingarforða, enda getur það eitt skýrt erfiðleika upplýsingarmanna á sínum tíma, heimsmyndardeiglu átjándu aldar sem snerist ekki um togstreitu þvaðurs og vísinda heldur ólíkar skýringar- eða sönnunaraðferðir, eins og rakið er í Bókmenntasögu III (1996). Íslenskir fræðimenn hafa ekki kannað skipulega dýpri rök þessarar þekkingar, heldur hafa rökleysa og ósannindi yfirleitt verið lögð að jöfnu án rökstuðnings; Þorvaldur Thoroddsen taldi að hjátrúin væri í sjálfri sér ósönn og órökrétt þótt fólk aðhylltist hana og samkvæmt Árna Björnssyni er hún nýrómantískur lygasamsetningur. Þar talar svo sannarlega maður sem veit. Árni beitir gamalkunnum brellum í rökleiðslu sinni: taldar eru upp fáeinar getgátur eins og um staðreyndir sé að ræða og lítið úr öðrum gert ef á þær er minnst. Hann er maður hins sjálfsagða og auðvitaða. Þegar lesið er í textann kemur hins vegar í ljós að rökfærslan, ef svo má kalla, er reist á huglægri og umdeildri sögutúlkun sem í þokkabót er rökstudd með "skáldlegum" hártogunum. Árni viðurkennir til dæmis með semingi að "galdratrú" hafi verið hvað útbreiddust hérlendis á sautjándu öld og framan af átjándu öld; nokkuð mun kannski vera til í því svo langt sem það nær á veraldargötunni. Þá er getið um "allskonar furðutrú" og "grósku ýmissa furðuhugmynda" sem stöfuðu af "opinberri innrætingu", því galdrafár reið yfir sunnan úr Evrópu fyrir tilstuðlan "einstakra lögmanna og presta". Ekkert er minnst á sögulegar reynslu- og hugsunarhefðir, heldur er málinu drepið á dreif með furðulegum samanburði við nútímaleg verðbréfaviðskipti: "Í sjálfu sér þarf engan að undra þótt hugkvæmir menn létu sig á þrengingartímum dreyma um töfralausn vandamála sinna. Það er sambærilegt við fáránlegt brask ýmissa athafnamanna nú á dögum sem láta sig dreyma um skjótfenginn gróða með fjármálatöfrum". Hér nær skilningur Árna Björnssonar á sögulegu samhengi og skilyrðum sálarlífs eftirminnilegu hámarki. Hið sama má kannski segja um útskýringu hans á draugasögum, en mórar og skottur "hefðu getað átt sér hliðstæðu í þroskaheftum unglingum eða niðursetningum sem sættu illri meðferð", ritar hann, og túlka sögurnar þá "hefndarhug þeirra, samlíðun nágranna og jafnvel brenglaða samvisku fúlmenna". Þessari draugagreiningu lýkur svona: "Rugluð eða drykkfelld stertimenni hefðu einnig getað orðið fyrirmynd að ýmsum flökkudraugum". Þarf nokkru við þetta að bæta; smyrjum hár vort, bræður, og klingjum skálum! Tæpt á vandamáli Mönnum gleymist stundum að "upplýsingin" var vígorð en ekki veruleiki, enda varaði Jón Sigurðsson árið 1860 við tvenns konar öfgum, "ofstæki hjátrúar einstakra manna" og "spotti heimskra gárunga", jafnframt því sem hann deildi á frumstæða skynsemistrú, "trúleysi ofvitringanna", með svofelldum orðum: "Það er eitt af þeim einkennum, sem fylgdi skynsemistrúar öldinni, að kasta frá sér öllu, sem var byggt á trú, en ekki reynslu; menn þóttust ekki vilja trúa því, sem menn ekki skildu, en ef satt skal segja þá skildu þeir harðla lítið, sem von var, þeir vissu ekki enn, heldur en Nikodemus, hvaðan vindurinn kom eða hvert hann fór. Til hvers á þá að láta sér svo drembilega, eins og maður þykist vita allt og skilja allt, og ekki vilja heyra annað nefnt?"(24) Það er hyggilegt að hafa þessi ummæli forsetans í huga þegar reynt er að skilja trúarlegt hugarfar fyrri alda, því það myndaði ekki samstæða heild í kirkjulegum skilningi, eins og fram er komið, heldur blönduðust saman ólíkar og andstæðar hugmyndafléttur sem erfitt er að afmarka, rekja saman og til róta.(25) Við skulum því ekki hafna "hugarslangri" sem stangast á við vitneskju um opinbera guðsdýrkun eða átrúnað; "óljósar skoðanir" kunna að skipta jafnmiklu máli og opinberar trúarkenningar, enda er enn margt á huldu um forsendur trúar, dulvísi og raunsæis; hvort táknræn, magísk eða dulúðug hugsun sé í eðli sínu frábrugðin hagnýtri skynsemi og vísindalegum hugsunarhætti. Flækjan snýst með öðrum orðum um eðli og aðferðir töfrareynslu, rökfræði galdurs og hjátrúar, hvort "frumstæð" hugsun lúti grundvallarlögmálum vestrænnar rökfræði eða ekki, enda er ýmist rætt um for-rökvísi, trú á yfirskilvitlegt orsakalögmál, samsemdarheim, upprunalega samrunaskynjun, hverfa hugsun, töfrahvörf og táknrænar gjörðir (performansa) í fræðiritum.(26) Samband trúar og reynslu hefur auk þess ekki verið skýrt á fullnægjandi hátt, kannski af því ekki er um raunverulega mótsögn að ræða; töfraathafnir virðast búa yfir "hlutlægri" sálarlífsreynslu sem eyðir í algleymi sínu mörkum "hugar" og "líkama", "menningar" og "náttúru". Sé þessi lýsing rétt er töfraathöfnum ekki aðeins beint að efnislegum heimi þar sem dularfullir áhrifastraumar eiga að hafa yfirskilvitlegar afleiðingar, heldur endurspegla þær sálræna atburði sem í senn eru náttúrulegir og afbrigðilegir. Tökum þekkt dæmi úr sögu mannfræðinnar: Svertingi nokkur af þjóðflokki Azandemanna var á heimleið að kvöldlagi eftir erfiða og hættulega veiðiferð. Hann bar feng sinn á bakinu og skimaði órólegur til himins, því kæmist hann ekki heim fyrir sólarlag var lífi hans háski búinn í skóginum. Hann staðnæmdist því á göngu sinni, tók upp grjóthnullung og tróð honum ofan í nálægan trjábol, jafnframt því sem hann tuldraði fyrir vörum sér: "Þú steinn, megi sólin ekki setjast fljótt í dag. Þú steinn, seinkaðu sólinni uppi á himninum svo ég komist áður heim; eftir það má sólin setjast".(27) Maðurinn hélt að því búnu ferð sinni áfram og segir ekki meira af honum. Þessari töfraathöfn mun hafa verið ætlað að seinka eða stöðva um stund niðurför sólar, hún átti að hafa bein áhrif á máttarvöldin með dularfullum hætti. Tortryggið nútímafólk sem ekki trúir á eðlislæga heimsku "frumstæðra" kynþátta hlýtur að spyrja hvort svertinginn hafi trúað þessu í raun og veru; vissi hann ekki að sólin "rís úr sæ" og "hnígur til viðar" með sama hætti hverju sinni, að menn geta með engu móti seinkað, snúið við né hraðað sólarhringnum, þótt töfrað sé, þusað og grúskað? Svo hlýtur að vera. Af hverju tróð hann þá grjótinu í tréð með velvöldum orðum í stað þess að hraða för sinni þegar í stað? Sá hann ekki að tekið var að skyggja, sviku skilningarvitin hann, bjástraði hann við tréð gegn betri vitund? Sama vandamál kemur upp þegar hugað er að regndönsum, galdralækningum og öðrum töfrasiðum, því fólk virðist trúa á orsakalögmál sem stangast á við hversdagslega reynslu og dómgreind. Hvernig má slíkt vera? er spurt. Þetta er ef til vill ekki jafnmikil ráðgáta og sýnist í fyrstu, því leggjum við ekki hlutunum til nauðsyn af vana; búumst við ekki við sólsetri í kvöld af því við höfum vanist því að sjá slíkt alltaf gerast, sólin hefur alltaf "sest" að kvöldlagi og "komið upp" að morgni á þessum tíma árs, svo lengi sem elstu menn muna. Hér er um sögulega reynsluhugmynd að ræða; við ályktum að hlutir sem fylgja hver öðrum í tíma og eru samlægir í rúmi myndi samband orsakar og afleiðingar, samhengið tilheyrir hugsun okkar en ekki hlutunum sem slíkum. Sé þetta rétt er lítill munur á hugtakamyndun töfra og vísinda, hversdagslegt orsakalögmál tilheyrir menningarlegum hugtakabúnaði líkt og lögmál töfra sem reist eru á venju og samkomulagi, þótt sum megi rekja til beinnar reynslu. Þetta tengist grundvallarvandamáli mannlegra fræða að mínum dómi. Er svo dæmi sé tekið eðlismunur á hugsunarhætti svertingjans afríska, snæfellsks sjómanns á sautjándu öld og nútímafólks sem ræktað hefur með sér "hlutlæga skynsemisgáfu"; eða felst munurinn kannski í arfi, uppeldi og aðstæðum, má til dæmis skýra hann með mismunandi aðstöðu áhorfanda og þátttakanda? Því er stundum haldið fram að rökrænn skilningur taki að þróast þegar barnið lærir að greina sig frá ytri heimi og eigin líkama; vitund um orsakasamhengi og sérstakt sjálf verða til "in tandem", hefur verið sagt,(28) en vestræn hugmyndafræði hyllir sérstæði, einstaklingseðli og rökræna hugsun, eins og kunnugt er; huganum er ekki aðeins ætlað að athuga heiminn á óvirkan hátt, heldur leitar hann uppi "hlutlæg" tengsl með rökfræðilegum aðferðum, enda tengjum við efnislega atburði sjaldan saman nema hægt sé að benda á orsakatengsl. Slík hugmyndafræði hefur líkast til skilyrt og gegnsýrt hugsun okkar og viðbrögð; við sjáum sjálf okkur sem alvitran höfund skáldsögu, sem herra X, fyrir utan það sem gerst hefur, gerist og mun gerast. Tökum dæmi um einstakling sem sér fugl fljúga upp af grein rétt áður en skothvellur kveður við. Hann ályktar jafnóðum, næstum því ósjálfrátt, að hljóðið hafi fælt fuglinn þótt það heyrðist eftir á. Hann hafnar með öðrum orðum eigin skynjun á grundvelli vitneskju um hraða hljóðs og næma heyrn fugla. Nú má ímynda sér að seinni atburðurinn sé ekki skothvellur heldur bílhljóð í fjarska eða jafnvel særingarhvísl galdraþular. Þá er í huga okkar varla um tengsl að ræða heldur tilviljun; tveir ótengdir atburðir gerast næstum því samtímis á sama stað, er sagt. Í báðum þessum tilvikum tökum við okkur stöðu fyrir utan það sem gerðist, við erum að eigin mati óháð einstökum atburðum, skoðum þá ofan af hlutlægum og hlutlausum sjónarhóli, við höfum skapað okkur "guðlega yfirsýn", ef svo má að orði komast, skynjum í gegnum þekkingu, gagnstætt "þátttakanda" fyrri tíðar sem hrærðist í kviku atburðanna, en "frumstæðu hugarfari" hefur stundum verið lýst í ljósi slíkra tengsla; Lucien Levy-Bruhl nefndi þau til dæmis "participation" og Georges Bataille fann í þeim upptök trúarlegrar reynslu. Slíkur einstaklingur sér fuglinn fljúga upp og heyrir síðan hvell, en hann ályktar ekki þar með af takmörkuðu hyggjuviti sínu að fuglinn sé orsök hljóðsins af því atburðirnir tveir eru nálægir í tíma. Þessir atburðir geta því aðeins fangað athygli hans að þeir hafi áhrif á líf hans á einhvern hátt, en gerist það er líklegt að fuglinn og hljóðið tengist saman innan heildar sem hann er hluti af; hann nemur ekki vélræn orsakatengsl heldur merkingarsamhengi sem ef til vill er hægt að hafa áhrif á með áhrínstöfrum, enda er hann í ákveðnum skilningi hluti af því sem hann skynjar; skynjun, þekking og umhverfi mynda samvirka, lífræna heild. Einstaklingarnir tveir virðast lifa í gjörólíkum heimi, en sé að gáð kemur í ljós að mismunur þeirra er minni en ætla mátti. Varast ber að gera of mikið úr mismun frumstæðra og siðmenntaðra manna, því herra X er sennilega tálsýn, við höfum varla "hlutlausari" yfirsýn en svertinginn í frumskóginum þegar allt kemur til alls. Rannsóknir innan málvísinda og heimspeki hafa að minnsta kosti sýnt að tungumál okkar inniheldur forn samsemdar- eða þátttökuvensl sem eiga sér upptök í beinni reynslu tíma og rýmis. Sumir fræðimenn telja jafnvel að töfrahugsun sem byggist á merkingarsamhengi sé ekki í eðli sínu frábrugðin vísindalegri orsakarhugsun; það sem skilur á milli er ekki rökfræðileg færni, heldur sálræn og vistfræðileg afstaða til atburða. Margir hafa eins og kunnugt er talað um "yfirnáttúruleg orsakalögmál", "dulúðug töfratengsl" eða "yfirskilvitlegan eðlismátt" hugar og náttúru, en þegar allt kemur til alls snýst vandamálið um reynslutengsl sálarlífs og ytri viðburða. Töfrahugsun (dulhyggja, hjátrú) þarf ekki að fela í sér skort á skynsemi, heimsku eða rangar ályktanir, hvað sem fræðilegri ellimæði líður, heldur getur hún falið í sér vísvitaða eða ómeðvitandi höfnun rökhugsunar, enda réðst saga töfra ekki af uppgötvun vísindalegrar rökvísi, þótt tala megi um óbein tengsl, heldur breytingu á hugarfari eða hugsunarhætti, sálrænni og vistfræðilegri þróun. Tengsl hugar og reynslu eru samsettari en fram kemur í einföldum andstæðusetningum um vísindi og töfra, sannindi og ósannindi, skynsemi og hjátrú, enda þarf ekki mikið til að breytast í hégiljung á öld Pauli og de Brogilie. Það er að minnsta kosti ljóst að vandamál trúar og rökvísi er óendanlega miklu flóknara en fram kemur í ritgerð Árna Björnssonar. Fjölhyggjuleiðingar 1. Ég held að Paul Feyerabend hafi haft nokkuð til síns máls; við lifum tæplega í einum heimi, eða svo dæmi hans sé notað: "Skógarvörður skynjar umhverfi sitt á annan hátt en rammvilltur borgarbyggi á helgarferð, hann nemur aðra atburði í þykkni skógarins, ekki aðeins ólíkar myndir sömu atburða, enda útheimtir umhverfi hans sérstaka tegund þekkingar sem ókunnugur ferðalangur býr ekki yfir". Þetta er enn augljósara ef horft er til framandi menningar eða annars söguskeiðs, ritaði Feyerabend; "guðir Forn-Grikkja voru lifandi nærvera, "þeir voru þarna", en nú á dögum fyrirfinnast þeir hvergi". Reynsla vestræns borgarbúa hjá afrískum ættbálki sýnir hið sama: "Ég hafði aldrei verið í sveit og gat varla greint á milli begónía, glitfífla og petúnía. Jurtir eiga það til að líta eins út og vera ólíkar eða öfugt, svo sem tíðkast í algebru, enda rugla grasafræði og stærðfræði mig í ríminu. Ég var fyrsta skipti á ævinni staddur í samfélagi þar sem tíu ára gömul börn voru ekki ofjarlar mínir í stærðfræði, en um leið var ég á stað þar sem sérhver jurt, villt eða ræktuð, átti sér nafn og notagildi, þar sem hvert mannsbarn þekkti bókstaflega hundruð jurta... [leiðsögumaður minn] fékk einfaldlega ekki skilið að það voru ekki nöfnin heldur jurtirnar sem gerðu mig fáráðan."(29) 2. Hæfileiki fólks til að taka eftir og túlka fyrirbæri eins og hljóð í skógi, birtubrigði og skýjaflóka á himni byggist á þróaðri þekkingu, eins og fram kemur í bókinni Maðurinn sem villtist á eiginkonu sinni og flókahatti; sveitafólkið afríska les jurtir jarðar sér til næringar og lækningar líkt og snæfellskir formenn lásu haf og himin í þaula forðum. Þegar þetta er haft í huga verða staðhæfingar um hégóma, tuggu og tjastur fyrri tíma vafasamar, því gengið er fram hjá þögulli reynsluþekkingu sem ekki er alltaf hægt að túlka með orðum;(30) dansari býr yfir kunnáttu í limum sínum, söngvari í tungu og barka, formaður "finnur á sér" veðurlag og aflasæld, hvað sem ritdeilum og lærðum skýringum líður. Hvernig getur skrifari sem aldrei hefur stigið um borð í árabát samsamað sig "þögulli þekkingu" fiskimanna á annarri öld sem ýmist voru aflamenn eða fiskifælur án fiskifræði og nútímalegra mælitækja? Tungumálið er þar á ofan samofið skynjun og þekkingu, auk þess sem margræðni orða, hvörf og líkingar grafa stöðugt undan tærum skilningi. Það er með öðrum orðum hæpið að slíta málfar, eftirtekt og skynsemisgáfu úr samhengi við reynslu, aðstæður skynjunar og viðtektir tungumáls á hverjum tíma; við getum ekki lesið sálarlíf sautjándu aldar til þrautar, fremur en hægt er að tileinka sér limaburð dansara með glápi og rökfræði. 3. Og samt getum við einnig hrifist frammi fyrir brunanum gamla á Djúpalónssandi; þegar kirkjan birtist í þokunni, fylking hrikalegra blágrýtisstróka með bólstrað rauðaberg í kollinum, brynjuð óreglulegum steinspjöldum sem, líkt og myndir þeirra sem hér lifðu og fórust forðum, taka á sig mismunandi form eftir birtu og sjónarhorni; og mannlífsfortíðin verður þá kannski annað og meira en skuggaflökt á grámáluðum skrifstofuveggjum. 4. Þessa dagana er algengt að afbrigðilegum, frumlegum vitsmunum sé útskúfað sem brjálsemi og órum; og boðið er upp á aðferð til að hugsa á réttan hátt, "hlutlæga skynsemisgáfu", sem á sér rætur í einhvers konar samkomulagi um veruleika, einni gerð þekkingar; eða eins og sérvitringurinn Paul Feyerabend ritaði í Skynsemin kvödd: Skynsemin og Rökvísin eru "máttarvöld af svipaðri tegund og umvafin samskonar geislahjúp og guðir, konungar, harðstjórar og þeirra fornu lög".(31) "Það er svo þægilegt að vera ósjálfráða", skrifaði Immanuel Kant, því eigi ég "bók sem hefur vit fyrir mér, sálusorgara sem tekur á sig samviskukvalir mínar, lækni sem ákveður mataræði mitt o. s. frv., þá þarf ég vitanlega ekkert að leggja mig fram sjálfur".(32) Ætli ósjálfræði Kants sé ekki enn jafn almennt og fyrrum, sitja skynsemi og vísindi ekki við völd umvafin ljóma átrúnaðardrumba, einvalda og helgirita liðinna alda; hefur hugsjón upplýsingarmannsins ekki snúist upp í andstæðu sína? En eins og Feyerabend bendir á þá hefur alltaf verið til fólk sem berst gegn hinu almenna ósjálfræði: "Þessi heimur er ekki kyrrstætt fyrirbæri byggt hugsandi maurum sem uppgötva smám saman á skriði sínu lögmál án þess að hafa á þau nokkur áhrif ... Heimurinn var eitt sinn guðabyggð, síðar litvana efnisheimur, og í fyllingu tímans mun hann væntanlega breytast í friðsælli stað, þar sem efni og líf, hugsun og tilfinningar, nýjungar og hefð verka saman öllum til hagsbóta";(33) eða með öðrum hætti sagt: veröldin er fjölhliðungur sem hrífur könnuði sína og breytist með þeim. 5. Reynsluhyggja: Söguskilningur okkar felur sjálfsagt alltaf í sér vott af hellistálsýn, hlutdrægni og skekkju, samtíminn herra X býr í okkur öllum, svo líklega er útilokað að greina á milli þess sem kemur frá okkur sjálfum og hins sem berst utan að, þess sem tilheyrir raunverulegri fortíð og hins sem á sér upptök í okkar eigin umhverfi. Það breytir því ekki að eindregin raunhyggja og rómantísk listdýrkun eru tímaskekkjur sem komast má undan, enda minna þessi viðhorf stundum á höfin tvö í málshættinum: tvö eru höfin og ratar heimskur hvorugt. Fræðimaður þarf að temja sér róttæk fjölhyggjuviðhorf í rannsóknum, hver sem lífsskoðun hans er, hvort sem hann hefur elst til kaþólsku, efnistrúar eða búddadóms; hann þarf að geta brugðið sér í líki margra sjókvikinda á höfunum tveimur vilji hann ekki steyta á skeri fuglum himinsins til athlægis.(34) Hann hlýtur að tileinka sér mismunandi sjónarhorn, hvert sem ætterni þeirra er, vilji hann öðlast örlitla innsýn í fjölbreytni mannlegrar hugsunar, hann hlýtur að ganga út frá því að trúarleg reynsla manna eigi sér margar undirstöður líkt og hamingjuvegir þeirra, að við getum ekkert vitað með vissu um hvort annað fólk hafi "innst inni" trúað á galdur, kreddur, drauga eða efnisleg náttúrulögmál; hvað bjó svo dæmi sé tekið í hugarfylgsnum þeirra sem fyrstir nefndu Tröllakirkju og Svörtuloft forðum? Sá sem hæðist að reynslu slíks fólks gerir því sjálfan sig að viðundri, líkt og Eggert Ólafsson um miðja átjándu öld sem ekki trúði á hverafugla en hímdi löngum stundum við hveri í semingsvon um að sjá þá þrátt fyrir allt.(35) Dæmisaga Galíleós Galílei um hljóðfræðinginn lýsir vel því sem ég á við, en í henni er sagt frá manni sem á ferð sinni um heiminn uppgötvaði fjölda ólíkra leiða til að mynda tóna og fagra söngva. Rakst hann sífellt á ný frábrigði sem hann hafði ekki órað fyrir áður, svo sem ófleygar krybbur er myndað gátu klingjandi skræki með vængjanúningi. Þegar maður þessi hélt að hann hefði séð allt, að ekki væru fleiri aðferðir til, rakst hann á söngtifu sem sökkti honum í djúp fávisku og hugarangurs, því hann gat með engu móti þaggað niður í skerandi tísti hennar. Hélt hann þó bæði um munn hennar og vængi. Maðurinn tók þá eftir skeljum á bringu tifunnar, en undir þeim lágu þunnar, harðar sinar. Grunaði hann að hljóðið skapaðist af sveiflum þeirra og ákvað að slíta þær í sundur til að stöðva tístið. Ekkert gerðist þó fyrr en nál hans hafði stungist inn í dýrið og svipt það bæði lífi og rödd, svo ekki fékkst skorið úr vandamálinu. Breyttist þekking hans eftir þessa reynslu í vantraust "svo hann tamdi sér að svara, þegar hann var spurður hvernig hljóð yrðu til, að hann þekkti að vísu nokkrar leiðir, en væri samt viss um að til væru margar aðrar sem væru ekki aðeins óþekktar heldur væri einnig ógerningur að ímynda sér þær".(36) Til baka í aðalvalmynd Aftanmálsgreinar (1) Þjóðsagnabókin. Sýnisbók íslenzkra þjóðsagnasafna. Sigurður Nordal tók saman. Annað bindi. Reykjavík, 1972, xv. Til baka. (2) Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á Íslandi árin 1752-1757. 1. bindi. Steindór Steindórsson íslenzkaði. Reykjavík, 1975, 158, 161. Til baka. (3) Rodney Needham: Belief, Language, and Experience. Oxford: Basil Blackwell, 1972, 1-2. Til baka. (4) Jónas Jónasson: "Formáli". Þjóðtrú og þjóðsagnir. Safnað hefir Oddur Björnsson. I. bindi. Akureyri, 1908, 6. Til baka. (5) Íslenzk orðabók handa skólum og almenningi. Ritstj. Árni Böðvarsson. Reykjavík, 1963. Til baka. (6) Sjá Sigurð Nordal: "Forspjall". Þjóðsagnabókin. Sýnisbók íslenzkra þjóðsagnasafna. Annað bindi. Reykjavík 1972, xxi. Til baka. (7) Bréf til Maurers 24. apríl 1864. Sigurður Nordal skýrir afstöðu Jóns á viturlegan hátt: "Ástæðan getur varla verið önnur en sú, að skugginn af fyrirlitningu upplýsingarinnar á öllu því, sem dularfullt var, meinaði honum að tala eins og honum bjó í brjósti...en það var talsvert annað að vera alinn upp suður í München en norður á Hofi á Skagaströnd. Jón hefur að sjálfsögðu verið miklu hjátrúaðri alla sína ævi en hann vildi játa fyrir sjálfum sér, hvað þá Maurer" ("Forspjall", 1972, xlviii-xlix). Til baka. (8) Jón Sigurðsson: "Íslenzkar alþýðusögur á þýzku eftir Dr. Konrad Maurer". Ný félagsrit gefin út af nokkrum Íslendingum. Tuttugasta ár. Kaupmannahöfn, 1860, 192. Til baka. (9) Jónas Jónasson: "Formáli", 1908, 1-7. Til baka. (10) Símon Jón Jóhannsson: Sjö, níu, þrettán. Hjátrú Íslendinga í daglega lífinu. Reykjavík: Vaka Helgafell, 1993. Til baka. (11) Sigurður Nordal: "Forspjall", 1972, xvii-xviii, xxx. Til baka. (12) Símon Jón Jóhannsson: Sjö, níu, þrettán. Hjátrú Íslendinga í daglega lífinu Reykjavík: Vaka Helgafell, 1993, 6. Til baka. (13) Sigurður Nordal: "Að útrýma einni villu er því miður ekki sama sem að höndla ný sannindi, hvað þá allan sannleikann" ("Forspjall", 1972, xii). Til baka. (14) Árni Óla taldi að í trú og hjátrú væri út frá því gengið að í heiminum "væri aragrúi ósýnilegra vera af ótal tegundum, æðri og lægri, og þessar verur sæju um stjórn heimsins, sín á hverju sviði. Trúin treysti á guðlega forsjón, þar sem einn guð, eða fleiri guðir hefðu hina æðstu stjórn á hendi. En hjátrúin gerði ráð fyrir því, að guðirnir þyrftu að hafa hjálpendur við stjórn heimsins, og þessir hjálpendur voru allskonar góðir vættir, guðdómlegs eðlis, þó ekki guðir, heldur voru þær svipaðar dýrlingum seinni alda" (Dulheimar Íslands. Reykjavík: Setberg, 1975, 7-8). Til baka. (15) Hjalti Hugason: "Kristnir trúarhættir". Íslenzk þjóðmenning V. Trúarhættir. Norræn trú. Kristni. Þjóðtrú. Ritstj.: Frosti F. Jóhannsson. Reykjavík: Bókaútgáfan Þjóðsaga, 1988, 330. Til baka. (16) Þetta hugtak má rekja til hellismyndar Platons, en löngu eftir hans dag kenndi enski heimspekingurinn Francis Bacon ákveðinn flokk rökvillna við idola specus eða "hellistálsýn". Hjá Erlendi Jónssyni er þeim lýst undir heitinu "heimska ("provincialism")"; Erlendur ritar: "Þessi villa felst í því að láta (venjulega ómeðvitað eða a.m.k. ekki tjáð með berum orðum) sitt nánasta umhverfi, vini, samstarfsmenn, sína eigin menningu, þjóðfélag hafa of mikil áhrif á skoðanir sínar, og hafna því sem annað umhverfi, menn af öðrum kynstofni eða þjóðerni eða með aðra menningu hafa upp á að bjóða. Hér er um að ræða fordóma gagnvart öllu því, sem framandi er og ókunnugt. Villan er tengd skírskotun til almannadóms eða hefðar, en felst í ákveðinni blindu eða fordómum gagnvart annarri menningu eða umhverfi en sínu eigin" (Rökfræði og gagnrýn hugsun. Reykjavík, 1996, 147-148). Til baka. (17) Hjalti Hugason: "Kristnir trúarhættir", 1988, 324. Til baka. (18) Sigurður Nordal: "Forspjall", 1972, xvii. Til baka. (19) Sök séra Jónasar liggur kannski í lýsingu hans á trúaruppsprettum þjóðsagna og þjóðtrúar: "Það varð þannig í þeirra augum annar heimur á bak við þennan, sem þeir lifðu í, sem þeir sáu ekki né fundu nema endrum og sinnum, þegar hann verkaði eða starfaði samhliða eða í og með hinum daglegu atburðum, eða vann og starfaði á bak við þetta daglega, stjórnaði því og leiddi það á ýmsa vegu ýmist til ills eða góðs. Með þessu móti fundu menn margvíslegar skýringar á fyrirbrigðum tilverunnar..." ("Formáli". Þjóðtrú og þjóðsagnir. Safnað hefir Oddur Björnsson. Akureyri, 1908, 2, 6-7). Til baka. (20) Jónas Jónasson: "Formáli", 1908, 5. Til baka. (21) Svipuð raunhyggja kemur fram hjá Símoni Jóni Jóhannssyni sem taldi að sum hjátrú væri til orðin "út frá verndarsjónarmiðum, til þess að vernda börn, barnshafandi konur o.fl. gegn hættum í umhverfinu", auk þess sem í henni felist "virðing fyrir umhverfinu og þeim lífheimi sem maðurinn er hluti af" (Sjö, níu, þrettán. Hjátrú Íslendinga í daglega lífinu. Reykjavík, 1993, 7). Til baka. (22) Sigurður Nordal: "Forspjall", 1972, xxx. Til baka. (23) Sjá umfjöllun í riti Peters Geach, Þorsteins Gylfasonar og Eyjólfs Kjalars Emilssonar: Þrætubókarkorn. Reykjavík: Heimspekistofnun Háskóla Íslands, 1989, 1-5. Til baka. (24) Jón Sigurðsson, 1860, 191. Til baka. (25) Ég hef notað hugtök "töfraskilnings", "trúarskilnings" og "vísindaskilnings" um þennan hugmyndahræring. Íslensk bókmenntasaga III. Reykjavík: Mál og menning, 1996, 43-68. Til baka. (26) Mikið hefur verið skrifað á seinustu árum um tengsl trúar, vísinda og töfra, en enn skortir ýtarlegt yfirlitsrit um sögu töfrarannsókna frá nítjándu öld til samtímans. Áhugafólki skal þó bent á tvær fróðlegar (alvöru)bækur um þetta efni: Ariel Glucklich: The End of Magic. New York / Oxford: Oxford University Press, 1997; Stanley Jeyaraja Tambiah: Magic, science, religion, and the scope of rationality. Cambridge: Cambridge University Press, 1990. Til baka. (27) E. E. Evans-Pritchard: Witchcraft, Oracles and Magic Among the Azande. Oxford: Clarendon, 1937, 469. Til baka. (28) Sjá til dæmis The Essential Piaget. New York: Basic Books, 1977, 198-214. Til baka. (29) E. Smith-Bowen: Return to Laughter. London, 1954, 19; sjá Paul Feyerabend: Farewell to Reason. London. New York, 1987, 104-105. Til baka. (30) Um "þögula þekkingu" má fræðast í bók Olivers Sack: The Man who Mistook his Wife for a Hat. New York, 1987. Til baka. (31) Paul Feyerabend: Farewell to Reason. London / New York, 1987, 11. Til baka. (32) Immanuel Kant: "Svar við spurningunni: Hvað er upplýsing?" Elsa Katrín Jónsdóttir og Anna Þorsteinsdóttir þýddu. Skírnir, haust 1993, 379. Til baka. (33) Paul Feyerabend, 1987, 126. Til baka. (34) Róbert H. Haraldsson víkur að vanda fjölhyggjumannsins í greininni "Lífsskoðun fjölhyggjumanns". Ritgerðir og greinar. Reykjavík: Háskóli Íslands, 1996, 48-58. Til baka. (35) Matthías V. Sæmundsson: "Litlu varð Vöggur feginn". Tímarit Máls og menningar 4 / 1997. Til baka. (36) Sjá þýðingu Þorsteins Vilhjálmssonar í Heimsmynd á hverfanda hveli II, 1987, 164-166. Þessi saga vísaði hjá Galíleó í deilur um eðli halastjarna, en með "söngtifum" er átt við skordýr af einni ætt (cicadidae) jurtasuguættbálks, en karldýrið hefur sérstakt líffæri neðan á afturbolnum sem gerir því kleift að gefa frá sér hávært tíst. Til baka. Til baka í aðalvalmynd